Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Saksóknarar lýsa „dauðalista“ Dutertes

Saksóknarar við alþjóðlega sakamáladómstólinn segja Rodrigo Duterte, fyrrverandi forseti Filippseyja, hafa valdið dauða þúsunda manna í svokölluðu stríði gegn fíkniefnum. Á næstu mánuðum liggur fyrir hvort hann verði ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni.Saksóknararnir saka Duterte um beina aðild að morðum að minnsta kosti 76 manns á árunum 2013 til 2018. Það sé aðeins brot af þeim sem voru drepnir í nafni hins svokallaða stríðs gegn fíkniefnum, sem Duterte hrinti af stað á stjórnartíð sinni, sem borgarstjóri í Davaó og síðar forseti Filippseyja.Duterte er grunaður um að hafa fyrirskipað dauða fjölda manna án dóms og laga. Þúsundir liggja í valnum eftir hið svokallaða stríð gegn fíkniefnum.Saksóknarar vilja að hann verði ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni og leggja fram gögn í þessari viku máli
Saksóknarar lýsa „dauðalista“ Dutertes

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta