„Um leið og við, einhverjir strákar í listræna teyminu, ætluðum að setja hana í ákveðinn farveg þá vorum við farnir að vinna gegn henni. Hún þarf að vera frjáls til að vera alveg eins og hún er,“ segir Adolf Smári Unnarsson leikstjóri óperunnar Carmen sem Kammeróperan sýnir um þessar mundir í Tjarnarbíói.Kristín Sveinsdóttir fer með hlutverk þessa frægasta tálkvendis tónlistarsögunnar en verkið er eftir franska tónskáldið George Bizet. Um nýstárlega uppsetningu á þessari ástsælu óperu er að ræða eins og Kammeróperunnar er von og vísa. Melkorka Ólafsdóttir ræddi við Adolf Smára og Kristínu í Víðsjá á Rás 1. FÓLK VERÐUR ÁSTFANGIÐ AF ÓPERU VEGNA CARMEN Stolt, ástríða og afbrýðisemi eru rauði þráðurinn í Carmen þar sem hinn ungi og skyldurækni hermaður, Don José, verður hugfanginn af hinni