Tæknifyrirtækið OK hefur verið valið Fortinet Partner of the Year 2025 á Íslandi. Samhliða því hlaut Ingólfur A. Ágústsson, sérfræðingur hjá fyrirtækinu, viðurkenninguna Fortinet Champion of the Year 2025. Viðurkenningarnar eru veittar þeim samstarfsaðilum og sérfræðingum sem hafa náð framúrskarandi árangri í sölu, ráðgjöf og innleiðingu lausna Fortinet á árinu, eins og segir í tilkynningu. Lesa meira