Breski grínistinn Russel Brand neitaði sök þegar hann var dreginn fyrir dóm í dag. Hann er ákærður fyrir nauðgun og kynferðisofbeldi gegn tveimur konum í Lundúnum árið 2009.Brand hefur þegar verið ákærður fyrir að brjóta á fjórum konum til viðbótar, á árunum 1999 til 2005. Tvær þeirra saka hann einnig um nauðgun.Aðalmeðferð hefst vegna fyrri mála í júní og er mögulegt að hin tvö verði þá einnig tekin fyrir.Umfangsmikil lögreglurannsókn hófst eftir að fjölmiðlar fjölluðu um ásakanir kvenna á hendur Brand haustið 2023.Brand naut mikilla vinsælda sem grínisti, útvarpsmaður og leikari upp úr aldamótum. Hann þótti afar opinskár og vakti athygli og stundum hneykslan.