Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Viðvaranir vegna norðvestan hvassviðris

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir vegna norðvestan hvassviðris eða storms á Suðausturlandi, Austurlandi og Austfjörðum. Vindur gæti orðið á bilinu 18 til 23 metrar á sekúndu og farið yfir 30 metra á sekúndu í snörpum vindhviðum við fjöll.Viðvaranirnar taka gildi klukkan fimm síðdegis og gilda mislengi fram á kvöld og nótt.Veðrið getur reynst varhugavert fyrir farartæki sem taka á sig mikinn vind.Veðurfræðingur Vegagerðarinnar vekur athygli á veðurhaminum á umferðarvef stofnunarinnar.„Hvöss norðvestanátt með vindhviðum yfir 35 m/s í vindstrengjum við fjöll austantil á landinu í kvöld, þá helst frá Skaftafelli og austur á Djúpavog eftir kl. 18 og fram á nótt. Blint í él og skafrenningi á Fagradal og Fjarðarheiði á sama tíma.“
Viðvaranir vegna norðvestan hvassviðris

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta