Íslensk tónlist var í öndvegi hjá breska ríkisútvarpinu um helgina á sérstökum tónleikum þar sem Sinfóníuhljómsveit BBC flutti verk eftir fjögur íslensk tónskáld. Þetta voru verk eftir Báru Gísladóttur, Daníel Bjarnason og Valgeir Sigurðsson. Svo var verkið Another Kind of Peace eftir Ólaf Arnalds heimsfrumflutt.Tónleikarnir Total Immersion: Icelandic Chill voru hluti af dagskrá BBC þar sem fjallað var yfir heilan dag um íslenska tónlist. Bára Gísladóttir lék á kontrabassa og flutti eigið verk, Hringlu, ásamt hljómsveitinni undir stjórn Christian Karlsen í Barbican Centre á sunnudagskvöld.Bára ræddi við menningarvef RÚV um tónleikana og hvað gæti valdið því að íslensk tónlist veki svo mikla athygli á erlendri grundu.„Þetta var mikil upplifun og gaman að fá að spila með þessari hljómsveit o