Sundlauginni og sturtunum í íþróttamiðstöðinni Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit hefur verið lokað og verða þær lokaðar alla þessa viku. Ástæðan er vatnsskortur í sveitarfélaginu. Til stendur að meta stöðuna aftur á mánudag og sjá til hvort hægt verði að opna sundlaugina og hleypa vatni á sturturnar á ný þann dag, eða hvort lokunin standi lengur.Íþróttasalurinn og þreksalurinn eru opnir samkvæmt áætlun.Aðstaða til styrktarþjálfunar í Heiðarborg.Hvalfjarðarsveit / Hvalfjarðarveit