Atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson fékk í morgun opið bréf frá Eurogroup for Animals, Animal Welfare Foundation og Dýraverndarsambandi Íslands. Bréfið er einnig sent til Hrannar Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Þóru J. Jónasdóttur, yfirdýralæknis Matvælastofnunar.Í bréfinu skora samtökin á þær að framfylgja reglum varðandi blóðmerahald á Íslandi. Stjórnvöld eru hvött til að fylgja reglugerð sem kveður á um að blóðtaka úr fylfullum hryssum falli undir rannsókn á dýrum í vísindaskyni en sé ekki skilgreind sem hefðbundinnn landbúnaður líkt og fyrirtækið Ísteka fer fram á og lætur reyna á fyrir dómi. HORMÓN SEM EYKUR FRJÓSEMI Í IÐNAÐARBÚSKAP Hormónið sem fyrirtækið Ísteka vinnur úr blóði fylfullra hryssna á Íslandi er aðallega notað sem frjósemislyf fyrir svín