18 ríki fordæma aðgerðir sem er ætlað að styrkja ítök Ísraela á Vesturbakkanum. Hamas-samtökin fagna yfirlýsingu ríkjanna en segja þörf á harðari viðbrögðum.Ísraelsk stjórnvöld hafa síðustu mánuði samþykkt stefnubreytingar varðandi hernámið á Vesturbakkanum. Meðal þess er að skilgreina landsvæði á Vesturbakkanum sem eign Ísraelsríkis og auðvelda Ísraelum að kaupa þar lóðir.Sádi Arabía, Egyptaland, Spánn og Frakkland eru meðal ríkja sem undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu og fordæma breytingarnar. Þau segja skýrt að aðgerðirnar miðist að innlimun Vesturbakkans í Ísraelsríki.Þetta sé óásættanlegt og bein aðför að innleiðingu tveggja ríkja lausnar milli Ísraels og Palestínu.Hamas-samtökin á Gaza fögnuðu yfirlýsingunni en segja brýnt að ganga lengra og beita refsiaðgerðum til að knýja á um að