Hótelherbergjum og íbúðum í miðbæ Akureyrar hefur fjölgað verulega á undanförnum árum og enn frekari uppbygging er framundan við Pollinn. Í nýju skipulagi er reiknað með meira mannlífi þar sem gangandi vegfarendur njóta forgangs.Á Drottningabrautarreitnum í miðbæ Akureyrar hafa sprottið upp nýbyggingar. Við Austurbrú og Hafnarstræti hafa risið 81 ný íbúð og til stendur að opna 86 hótelherbergi í vor - og verða þá hótelherbergin við þá götu orðin um 220 - talsvert fleiri en reiknað var með í upphafi.Nú þegar sér fyrir endann á þessu hefur bærinn lagt til að Hafnarstrætið verði gert að vistgötu.Þannig verði rýmkað fyrir gangandi og hjólandi, frá Bautanum og að Drottningarbraut.Nýbyggingar hafa sprottið upp í miðbæ Akureyrar síðustu ár og fleiri eru á teikniborðinu. Til skoðunar er að Hafnars