„Langtímamarkmiðið er að markaðssetja Rósina sem alvöru möguleika fyrir jafnaðarmenn,“ segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður landsmálafélagsins Rósarinnar, aðildarfélags Samfylkingarinnar, sem sagði sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar í Reykjavík á dögunum. Hvorki Guðmundur Ingi, né varaformaður flokksins, Guðmundur Árni Stefánsson, taka undir að hér sé um klofning að ræða innan Samfylkingarinnar, þó formaður Rósarinnar segir þetta vissulega klofningi í framboðsmálum í Reykjavík. ...