Skattur sem leggst á Kerecis vegna sölu á hugverkaréttindum til danska fyrirtækisins Coloplast verður greiddur í einu lagi í haust. Heimild til að deila greiðslum á sjö ár verður ekki nýtt. Því á ríkissjóður von á 40 milljarða króna eingreiðslu.Þessu greinir Morgunblaðið frá í dag og vísar bæði í árshlutareikning Kerecis og viðtal við Guðmund Fertram Sigurjónsson, stofnanda Kerecis.Coloplast er móðurfélag Kerecis.Morgunblaðið hefur eftir Guðmundi að skattgreiðslan sé til marks um gríðarlega verðmætasköpun á Vestfjörðum á síðustu árum.