Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kristrún og fleiri þjóðarleiðtogar minnast tímamótanna

Þjóðarleiðtogar víðs vegar að tóku þátt í bænastund í dómkirkju í miðborg Kyiv. Þaðan lá leið leiðtoganna á minningarathöfn á Maidan-torgi. Forsætisráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna eru meðal þeirra sem taka þátt. Björn Malmquist, fréttamaður, er í Kyiv: „Hérna verður minningarathöfn fyrir framan stóra og mikla fánaborg sem hefur sífellt farið stækkandi á undanförnum árum þar sem maður getur virt fyrir sér flögg, myndir og alls konar minningar um hermenn sem hafa fallið í Úkraínu á undanförnum árum. Ég hef komið hingað nokkrum sinnum, það er eins og hann stækki í hvert skipti, ekki að ástæðulausu, og það er alltaf áhrifamikið að koma hér inn í miðborgina og sjá þessa fánaborg sem hér blasir við.“
Kristrún og fleiri þjóðarleiðtogar minnast tímamótanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta