Maður sem leigði fjölskyldu Margrétar Löf hestabás haustið 2024 segist hafa furðað sig á samskiptum hennar og foreldra hennar. Hjónin hafi sinnt meirihluta erfiðisvinnunnar sem fylgdi umhirðu hestsins meðan Margrét stóð gjarnan hjá.Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd í 16 ára fangelsi í fyrra fyrir að verða föður sínum, Hans Roland Löf, að bana og fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart móður sinni. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness segir að Margrét hafi ítrekað beitt foreldra sína ofbeldi.„Maður átti bara svona hlýleg samtöl við þau hjónin. Stúlkan var alltaf svolítið sérstök,“ segir Sigurbjörn Bárðarson, sem leigði fjölskyldunni bás fyrir hest Margrétar.Sigurbjörn Bárðarson segist hafa gert athugasemdir við samskipti Margrétar Löf við foreldra sína eftir að hafa leigt fjölskyldunni