Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fjögur ár frá upphafi blóðugustu átaka í Evrópu frá síðari heimsstyrjöld

Fimmta ár innrásarstríðs Rússa í Úkraínu hófst í morgun. Það er lengri tími en leið frá innrás Þjóðverja í Sovétríkin til stríðsloka. Fyrri heimsstyrjöldin stóð í fjögur ár, þrjá mánuði og fjórtán dögum betur.Þrátt fyrir að skriður virðist kominn á friðarviðræður eru lítil sem engin teikn á lofti um að þessu mannskæðasta stríði í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar sé að ljúka. Hér verður stiklað mjög á stóru um fjögurra ára sögu stríðsins og afleiðingar þess.Leiðtogar aðskilnaðarsinna í Donetsk og Luhansk sendu þann 19. febrúar 2022 út allsherjarherkvaðningu þar sem þeir óttuðust að stríðsátök væru í þann mund að brjótast út í landinu.Þann dag höfðu verið boðaðar miklar heræfingar Rússlandshers við landamæri Úkraínu. Vladimír Pútín Rússlandsforseti viðurkenndi sjálfstæði héraðanna 21.
Fjögur ár frá upphafi blóðugustu átaka í Evrópu frá síðari heimsstyrjöld

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta