Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Eva Joly kveðst glöð vilja leiða rannsóknarnefnd um Epstein-skjölin

Norsk-franski rannsóknardómarinn Eva Joly kveðst glöð vilja leiða óháða rannsóknarnefnd sem fjallar um þátt háttsettra Norðmanna í Epstein-skjölunum. Það sé þó Stórþingsins að ákveða hvort hún fái hlutverk í nefndinni og þá hvaða.Joly segir í samtali við TV2 slíka rannsókn afar brýna og þótt nefndinni sé ætlað að þau norsku nöfn sem er að finna í skjölunum ætti hún að kafa dýpra og spyrja meðal annars hvernig bæta megi stofnanaumhverfið í Noregi.Nefndin þurfi að hafa mjög víðtækt umboð. Vilji virðist til þess innan þingsins. Joly segir alþjóðlegt orðspor Noregs hafa beðið alvarlega hnekki þegar á daginn kom hversu margir höfðu náin tengsl við Epstein.Eva Joly bendir á að náin tengsl sendiherrahjónanna Monu Juul og Terje Rød-Larsen við Epstein hafi komið á daginn 2019 og spyr hví efnahagsbr
Eva Joly kveðst glöð vilja leiða rannsóknarnefnd um Epstein-skjölin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta