Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti hvetur Donald Trump Bandaríkjaforseta til að vera áfram hliðhollur Úkraínumönnum í baráttu við innrásarher Rússa. Zelensky sagði í viðtali við CNN að Bandaríkin ættu að standa með lýðræðisríki sem væri að berjast við einn mann.„Því þessi maður er stríð. Pútín er stríðið,“ sagði Zelensky sem finnst Donald Trump ekki leggja nógu hart að Rússlandsforseta.„Bandaríkin eru öflug og þau geta stöðvað Pútín, ef þau raunverulega vilja það,“ sagði Zelensky og bætti við að Úkraína gæti ekki afhent Pútín allt það sem hann heimtar. Ef farið yrði að hernámskröfum Pútíns væri allt glatað og Úkraínumenn yrðu annaðhvort að flýja land eða verða Rússar.Í nótt eru fjögur ár liðin síðan Vladimír Pútín fyrirskipaði allsherjarinnrás í Úkraínu og síðan þá hafa tugir þúsunda almenn