Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ástralir vilja losna við Andrew úr ríkiserfðaröðinni

Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, segir ríkisstjórn sína muna senda bréf til ríkja breska samveldisins á morgun varðandi stuðning sinn við að Andrew, fyrrverandi prins, yrði fjarlægður úr ríkiserfðaröðinni. Andrew hefur þegar verið sviptur tign, titlum og heiðursnafnbótum.Albanese segist hafa rætt við Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, um Andrew sem er til rannsóknar fyrir meint brot í opinberu starfi í kjölfar uppljóstrana um samskipti hans við bandaríska kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein.Að sögn Albanese þarf Bretland að hefja breytingar á ríkiserfðaröðinni en þær krefjist svo samþykkis hinna 14 samveldisríkjanna sem hafa Karl III konung sem þjóðhöfðingja. Forsætisráðherrann sagðist hafa skrifað til leiðtoga fylkja og landsvæða Ástralíu, sem einnig þyrftu að samþy
Ástralir vilja losna við Andrew úr ríkiserfðaröðinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta