Charles Kushner, sendiherra Bandaríkjanna í Frakklandi, mætti ekki á fund í utanríkisráðuneyti Frakklands sem hann var kallaður á í dag. Kushner mun ekki lengur hafa beinan aðgang að ráðherrum Frakklands en fær að sinna tilteknum erindrekstri.Franski miðillinn Le Monde greinir frá þessu.Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, kallaði Kushner á fund í kjölfar ummæla ríkisstjórnar Trumps um Quentin Deranque, öfga-hægrimann sem var drepinn fyrr í mánuðinum, sem bandaríska sendiráðið í París deildi.Deranque, sem var 23 ára, lést vegna áverka á höfði eftir að minnst sex manns réðust á hann á mótmælafundi öfga-hægrimanna gegn vinstrisinnaða stjórnmálamanninum Rima Hassan sem hélt tölu við háskóla í Lyon.Barrot fordæmdi í gær tilraunir til að nýta dauða Deranque „í pólitískum tilgangi“ og