Sálfræðileg aðstoð, rannsókn á meðferðar- og vistheimilum, möguleikar á sanngirnisbótum og aukið eftirlit með fósturráðstöfunum eru verkefni sem Stjórnarráðið hefur þegar komið í farveg eftir umfjöllun Kveiks um brotalamir á vistheimilinu Bakkakoti.Forsætisráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, félags- og húsnæðismálaráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið hafa nú samráð sín á milli um aðgerðir í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum um Bakkakot og málefni fósturbarna. RANNSAKA MÁLEFNI FÓSTURBARNA Í FORTÍÐINNI Forsætisráðuneytið er í viðræðum við Landspítalann um útfærslu á áfallahjálp og greiningu á þjónustuþörf og sálfræðiaðstoð vegna málefna fósturbarna. Úrlausn verður kynnt síðar í þessari viku.Þá stendur til að koma á fót sérstakri rannsóknarnefnd sem verður falið að fjalla um málefni fós