Reynisfjara leit nokkuð öðruvísi út í morgun eftir að stórstreymt var í gær og mikil ölduhæð. Íris Guðnadóttir, bóndi og landeigandi við Reynisfjöru, segir að brotnað hafi upp úr útsýnispallinum við fjöruna og grjót komið inn á göngustíginn.„Það skóf undan útsýnispallinum hjá okkur og skóf undan öðru skiltinu þannig það hrundi niður en hitt stendur nú ennþá og útsýnispallurinn hann er svona eiginlega farinn,“ segir Íris. EKKI FÆRT NIÐUR Í FJÖRU Íris segir ekki koma að sök þótt annað skiltið sé farið, þar sem þar koma fram leiðbeiningar um hvernig eigi að bera sig að þegar það er fjara við Stuðlaberg en núna sé ekki fært þangað. Hún segir ný skilti vera í framleiðslu sem átti að setja upp með vorinu.Fylgjast þurfi með veðrinu næstu daga og ákveða hvernig viðgerð á útsýnispallinum verði.„