Um 32 hektarar brunnu í eldunum í gær - sem er svipað og 45 Laugardalsvellir. Þeir kviknuðu ofan við Vatnsvík við suðvesturhorn Elliðavatns.Þar er mikið af þurru grasi og um tíma náði eldlínan þaðan og að útivistarsvæðinu í Guðmundarlundi, sem er í um kílómetra fjarlægð. ALLUR SKÓGURINN HEFÐI GETAÐ BRUNNIÐ Kristinn H. Þorsteinsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs sem hefur umsjá með Guðmundarlundi segist vart mega til þess hugsa, hefði eldurinn náð að læsa sig í trén þar. „Ég reikna með, ef þau hefðu náð að fuðra, þá myndast svo mikill hiti að þetta hefði farið áfram í gegnum skóginn. Jafnvel í gegnum allan skóginn.“En það gerðist ekki, því eldurinn stöðvaðist við mjóan göngustíg í norðurjaðri lundarins. „Hér erum við með stíg sem er hluti af eldvörn,“ segir Kristinn.Þannig að