Hlynur Már Ragnheiðarson býður sig fram til formanns Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Formannskjör fer fram á landsfundi flokksins í byrjun mars. Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur þegar tilkynnt framboð en Svandís Svavarsdóttir sækist ekki eftir endurkjöri.AðsendHlynur Már, sem er sjúkraliðanemi, tilkynnti framboð sitt fyrr í dag. Í tilkynningunni segir hann stefnur sínar „ríma að mestu ef ekki öllu leyti við stefnur Vinstri grænna og því tel ég mig vera á réttum stað í VG til að gera breytingar til batnaðar og efla ítök og vinsældir vinstrisins á Íslandi“.