Margrét Halla Hansdóttir Löf var í desember 2025 dæmd í 16 ára fangelsi fyrir að verða föður sínum að bana og fyrir stórfellda líkamsárás á móður sína. Hún situr nú í fangelsinu á Hólmsheiði en hefur áfrýjað dómnum til Landsréttar.Við meðferð sakamálsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Í þáttunum Vítahringur Margrétar Löf á Rás 1 er reynt að varpa ljósi á hvers vegna málin þróuðust á versta veg hjá fjölskyldunni í Súlunesi. GENGU MILLI SÉRFRÆÐINGA Það var samt ekki eins og fjölskyldan hefði ekki reynt að takast á við vandamálin.Árin áður en Hans var sviptur lífi gengu Margrét og foreldrar hennar örvæntingarfull milli sérfræðinga. Þau hittu sálfræðinga, félagsfræðinga og fjölskylduráðgjafa.Margrét lýsti vaxandi vanlíð