Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vonlítil um stríðslok og óttast um fjölskylduna á hernumdu svæði

Kona frá Úkraínu, sem flutti hingað til lands ári áður en innrás Rússa í landið hófst, segir erfitt að halda í vonina um að stríðinu ljúki - nærri fjórum árum eftir að það hófst. Hún vill ekki þekkjast í viðtalinu því hún óttast um fjölskyldu sína sem býr á svæði sem Rússar hafa hernumið. UPPLIFIR LEIÐA, ÞUNGLYNDI OG ÓTTA FJÓRUM ÁRUM SÍÐAR Rússar náðu borginni Kherson, í samnefndu héraði, á sitt vald skömmu eftir innrásina. Úkraínuher tókst að endurheimta borgina en hluti Kherson-héraðs er enn á valdi Rússa - og á því svæði býr fjölskylda konunnar; foreldrar og bróðir. Hún flutti hingað til lands ári áður en stríðið hófst en segir eins og það hafi verið í gær, að hún heyrði af innrásinni.„Ég grét og var mjög sorgmædd í upphafi. En nú eru liðin fjögur ár og það er eins og allar þessar ti
Vonlítil um stríðslok og óttast um fjölskylduna á hernumdu svæði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta