Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ávarpaði í dag mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna á árlegri ráðherraviku ráðsins í Genf í Sviss.Í ræðu sinni að síðasta ár hefði verið afar krefjandi fyrir alþjóðakerfið í skugga átaka víða um heiminn. Mæla megi að þverrandi virðing sé fyrir alþjóðalögum og mannréttindum.„Við erum að upplifa mikið bakslag þegar það kemur að mannréttindum,“ segir Þorgerður Katrín. Ræðan hafi verið í samræmi við áherslur Íslands yfir þau þrjú ár sem landið á sæti í ráðinu.„Það er áhersla á jafnrétti, réttindi minnihlutahópa, barna og síðan líka á að loftslagsbreytingar verði ekki undanskildar í þessari umræðu,“ segir hún.Meðal þess sem hún lagði áherslu á var mótstaða við innrás Rússlands í Úkraínu og að ástandið á Gaza væri enn skelfilegt þrátt fyrir að vopna