Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands segir skiljanlegt að stúdentar mótmæli gjaldskrárhækkunum og segist ítrekað hafa bent á að fjármögnun háskólans liggi hjá stjórnvöldum, núverandi skrásetningargjald sé fjarri því að nægja. Hún segist hafa rætt málið við stúdenta og segist ítreka vilja sinn til að vinna með stúdentum að hagsmunum þeirra.