Fjallað hefur verið um þátttöku einstaklinga með tvöfaldan ríkisborgararétt í ísraelska hernum í fréttamiðlum erlendis eftir að frjálsu félagasamtökin Hatzlacha öfluðu gagna um þessa einstaklinga í krafti upplýsingalaga Ísraels.Fréttir af þessu voru meðal annars birtar á vefsíðunni Declassified UK þar sem sagt var frá því að 2.000 hermenn með breskan og ísraelskan ríkisborgararétt hefðu gegnt herskyldu í ísraelska hernum og tekið þátt í stríði Hamas og Ísrael.Fyrir það hafði einungis verið hægt að fá upplýsingar um breska hermenn sem ekki höfðu ísraelskan ríkisborgararétt og voru skráðir í ísraelska herinn og voru þeir einungis 54 talsins.Fréttastofa sendi fyrirspurn á ísraelska herinn og fékk staðfest að einn hermaður bæri bæði íslenskan og ísraelskan ríkisborgararétt. Fréttastofa sendi f