Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Miðflokkurinn hakkaður

Heimasíða Miðflokksins varð fyrir netárás kínverskra „botta“ eða stafrænna vélmenna og liggur því niðri. Þetta staðfestir Gunnar Bragi Sveinsson, framkvæmdastjóri Miðflokksins, í samtali við fréttastofu.„Við sáum þetta bara í morgun og létum okkar hýsingaraðila vita,“ segir hann. Þar hafi hann fengið þau svör að þetta væri vel þekkt með wordpress-síður. Stafræn vélmenni keyri um netið og ráðist sjálfkrafa á öryggisbresti.Gunnar Bragi telur að enginn skaði sé skeður. Unnið sé hörðum höndum að því að koma heimasíðunni í samt lag á ný.„Síðan þarfnast uppfærslu og svo bætum við við öryggi ef þarf,“ segir Gunnar Bragi.Vonir standa til að síða flokksins verði komin upp aftur í kvöld.„En ég get ekkert sagt til um það. Við gerum bara það sem okkar hýsingaraðili segir okkur að gera.“
Miðflokkurinn hakkaður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta