Joey Christ lýkur plötuþríleik sínum, sem hófst með gríðarlegum vinsældum 2017, með plötunni Joey 3. Hann segir að nýja platan sé persónulegasta verk hans til þessa. Fyrri plöturnar einkenndust af krafti næturlífsins og sjálfhverfu en Jóhann segir að þessi plata sé afrakstur sjálfskoðunar og reynslu.Fyrsta platan kom út 2017 og önnur platan tveimur árum síðar. Á Joey 3 leitast Jóhann Kristófer við að draga saman þræðina og marka tímamót. Hann hefur breyst og þroskast í kjölfar lífstílsbreytinga og rappar nú sem hann sjálfur en ekki sem karakter.Á plötunni eru 17 lög þar sem hann tekur stjórnina á hljóðheiminum og notar röddina á fjölbreyttari hátt sem skapar meiri dýpt.Joey Christ sagði Atla Má Steinarssyni frá plötu vikunnar, Joey 3, á Rás 2.