Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Skjöl um fljúgandi furðuhluti reynast vonbrigði

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað alríkisstofnunum að yfirfara og birta öll gögn og upplýsingar sem tengjast óþekktum fljúgandi fyrirbærum og geimverum. Hann sagði í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social gríðarlegan áhuga fólks á þessum fyrirbærum kveikjuna að fyrirskipuninni. Fjallað er um þessi mál í Þetta helst í dag.Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari, segir að birting áður leynilegra skjala um fljúgandi furðuhluti hafi alltaf reynst „óskaplega mikil vonbrigði.“ Bandaríkjaforseti hefur skipað alríkisstofnunum að birta gögn um fljúgandi fyrirbæri og geimverur.„Við vitum harla lítið um líf annars staðar en á jörðinni. Við þekkjum til dæmis tvo staði í sólkerfinu okkar þar sem líf gæti þrifist, og jafnvel þrjá. Það er þá Mars, Júpítertunglið Evrópa og Satúrnustunglið Enkel
Skjöl um fljúgandi furðuhluti reynast vonbrigði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta