Notkun bílnúmeralesara á móttökustöðvum Sorpu á höfuðborgarsvæðinu frá og með 1. mars mun ekki hafa áhrif á stærstan hluta borgarbúa.Tilgangur lesaranna er fyrst og fremst að greina viðskiptavinahóp Sorpu, einfalda verkferla og að rukka viðskiptavini sem ekki hafa greitt í sjóði sveitarfélaga. VILJA AÐ ÓLÍKIR HÓPAR GREIÐI RÉTT GJALD Á Sorpu eru tvær gjaldskrár, annars vegar fyrir íbúa á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar fyrir aðra.Að sögn Gunnars Dofra Ólafssonar, sviðsstjóra þjónustu-og samskiptasviðs Sorpu, borga höfuðborgarbúar í Sorpu samhliða fasteignagjöldum sem gerir þeim kleift að henda ákveðnum tegundum af rusli án þess að vera rukkaðir um það í hliðinu.Á sama tíma sé allt að fjórðungur þeirra sem komi á endurvinnslustöðvar höfuðborgarsvæðisins skráður sem fyrirtæki og hátt í 10