Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Veðurviðvörun hjá yfir 40 milljónum manna

Snjóbylur herjar á minnst fimm ríki í norðausturhluta Bandaríkjanna. Honum fylgir allt að 60 cm jafnfallinn snjór og vindstyrkur sem slagar upp í styrk fellibyls.Viðvaranir vegna veðursins ná til 40 milljóna manna. Almenningssamgöngur liggja niðri víðast hvar og fólki er ráðlagt að halda sig frá vegunum. Yfir 10 þúsund flugferðum hefur verið aflýst. Þá eru um 400 þúsund manns án rafmagns vegna veðursins.Í Fíladelfíu mældist jafnfallinn snjór yfir eitt fet (30,5 cm) í fyrsta sinn í tíu ár.Neyðarástandi var lýst yfir í New York og þar er allsherjarferðabann í gildi til hádegis að staðartíma, sem og í New Jersey. Öllu skólastarfi hefur verið aflýst í dag. Veturinn er orðinn sá snjóþyngsti þar í fimm ár.
Veðurviðvörun hjá yfir 40 milljónum manna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta