Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kjartan Vídó vill á lista hjá Sjálfstæðismönnum

Kjartan Vídó Ólafsson sækist eftir þriðja til fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum fyrir kosningar í vor. Kosið verður í efstu sæti listans í prófkjöri 13. mars. Kjartan hefur meðal annars starfað sem markaðsstjóri Handknattleikssambands Íslands og er meðal stofnenda handverksbrugghússins The Brothers Brewery. Hann leggur í framboðstilkynningu áherslu á að vinna að áframhaldandi uppbyggingu bæjarins, styrkja grunnþjónustu, styðja við atvinnulífið og standa vörð um hag íbúa á öllum aldri. Kjartan segir góð og heiðarleg stjórnmál byggjast á nálægð, trausti og sterkri liðsheild. Hann vilji vera sýnilegur og aðgengilegur.Aðsend
Kjartan Vídó vill á lista hjá Sjálfstæðismönnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta