Matfugl hefur innkallað eina framleiðslulotu fyrirtækisins af ferskum heilum kjúklingi sem framleiddur er fyrir Bónus. Grunur leikur á að salmonella finnist í þessari framleiðslulotu (nr. 011-26-03-5-64) og varar Matvælastofnun því við neyslu á henni.Fólk sem hefur keypt kjúklinga í þessari lotu á ekki að neyta þeirra heldur farga þeim eða skila til viðkomandi verslunar.Eldaðir heilir kjúklingar. Mynd úr safni.Shutterstock