Dominique Desiree Oakley og Richard Douglas Laney fluttu frá Tennessee til Hauganess af tveimur meginástæðum. Önnur þeirra er trjáofnæmi sem Doug er með og hin er pólitíska landslagið í Bandaríkjunum. Þegar ljóst var að þau yrðu að flytja á brott var allur heimurinn undir. Þau flugu til Íslands til að kanna aðstæður og kolféllu fyrir Norðurlandi. Þar reka þau veitingastaðinn Baccalá Bar og hafa gert síðan í júlí. Það er óhætt að segja að röð tilviljana hafi leitt til þess að þau tóku við rekstrinum.Þau dreymir um að kaupa eða byggja sér hús á Hauganesi. Í þessu hundrað manna þorpi er ekki mikið um húsnæði á lausu og þess vegna bjuggu þau hjónin á tjaldsvæðinu í þorpinu um tveggja mánaða skeið í sumar.