Unnar Þór Sæmundsson, framkvæmdastjóri og laganemi, sækist eftir öðru til fimmta sæti á lista Pírata fyrir borgarstjórnarkosningar. Unnar er einn þeirra sem sögðu í Kveik að þeir hefðu verið beittir líkamlegu og andlegu ofbeldi þegar þeir voru vistaðir á Bakkakoti á Suðurlandi fram til ársins 2002.Unnar segist hafa ákveðið í ársbyrjun að gefa kost á sér í prófkjöri Pírata. Hann segist þá hafa verið ákveðinn í að mæta ekki í Kveik og segja ekki sögu sína þar. Honum hafi þótt það ósamræmanlegt því að ætla í stjórnmál til að breyta barnaverndarkerfinu. Hann hafi síðar ákveðið að láta Bakkakot ekki taka meira frá sér og því sagt sögu sína.Unnar Þór Sæmundsson.Kveikur / Ingvar Haukur Guðmundsson