Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Óveður í New York hefur áhrif á 1.700 farþega Icelandair

1.700 manns eiga flugmiða í ferðir Icelandair sem var aflýst vegna óveðurs í New York í Bandaríkjunum í gær og í dag. Tveimur ferðum til New York var aflýst í gær og í dag aflýsti Icelandair tveimur ferðum til New York og einni til Boston.Félagið stefnir á að bæta við flugi á morgun, segir Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair. Beðið sé eftir staðfestingu frá Bandaríkjunum.Guðni er vongóður um að ekki þurfi að aflýsa fleiri ferðum vegna óveðursins.RÚV / Ragnar Visage
Óveður í New York hefur áhrif á 1.700 farþega Icelandair

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta