Jeff Landry, ríkisstjóri Louisiana og sendifulltrúi Donalds Trump Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi, hefur brugðist ókvæða við því að grænlensk stjórnvöld afþökkuðu bandarískt sjúkraskip, sem Trump fullyrti að hann ætlaði að senda til landsins. „Skömm sé Jens-Frederik Nielsen forsætisráðherra!“ sagði Landry á samfélagsmiðlinum X í nótt. „Donald Trump forseta og Bandaríkjunum er ekki sama.“ Trump vakti undrun þegar hann fullyrti á samfélagsmiðli...