Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þrír drepnir í árásum Rússa í nótt

Rússar skutu miklum fjölda eldflauga og dróna víða á Úkraínu í nótt, degi áður en fjögur ár verða liðin frá því innrás Rússa í landið hófst.Tveir voru drepnir þegar drónum var skotið á Odesa-hérað. Árásunum var beint að orkuinnviðum, en einnig að borgaralegum innviðum. Þrír særðust í þessum árásum.Þá var gerð drónaárás í Zaphorizhzhia á iðnaðarsvæði þar sem einn var drepinn og annar særðist.Rússar höfðu í gær gert viðamiklar árásir á orkuinnviði, lestarteina og íbúðarhúsnæði, einkum í Kyiv og nágrenni. Þar var einn drepinn og á annan tug særðust. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu að í þeim árásum hefði hátt í 300 drónum og 50 eldflaugum verið skotið að Úkraínu.
Þrír drepnir í árásum Rússa í nótt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta