Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að kona sem nágrannar höfðu ekkert orðið varir við langtímum saman í covid-bylgju vetrarins 2020–2021 hafði legið látin í íbúð sinni um tveggja mánaða skeið, myrt af syni sínum.Sagan af því hvernig Dale Morgan myrti móður sína og hylmdi yfir morðið er sögð í nýjum þætti þáttaraðarinnar „The Truth About My Murder“ á BBC One Wales. Þar kemur fram að hann nýtti sér samkomutakmarkanir og útivistarbönn til að hylma yfir morðið.Judith Read bjó í velska þorpinu Pembroke Dock og vann þar við umönnunarstörf. Sonur Read flutti inn til hennar í covid til að annast hana meðan hún glímdi við veikindi, þá orðin 68 ára gömul. Fljótlega hætti Read að sjást opinberlega. Nágrannar spurðu soninn en hann kvað hana hafa einangrað sig til að draga úr hættu á því að smitast af cov