Litlar líkur eru taldar á að tuttugasti pakki refsiaðgerða Evrópusambandsins gegn Rússum verði samþykktur, þegar utanríkisráðherrar ESB-ríkjanna koma saman á fundi í Brussel í dag. Stífar viðræður fastafulltrúa aðildarríkjanna hafa staðið yfir síðustu daga, og stefnt hafði verið að því að afgreiða pakkann fyrir morgundaginn, þegar fjögur ár verða liðin frá því að Rússar hófu allsherjarinnrás sína í Úkraínu.Ungverjar standa hins vegar í vegi fyrir því að refsiaðgerðapakkinn verði samþykktur, sagði utanríkisráðherra Ungverjalands, Peter Szijjártó á samfélagsmiðlum um helgina. „Evrópusambandið stefnir að því að afgreiða tuttugasta pakka refsiaðgerða. Ungverjaland mun ekki samþykkja. Þangað til Úkraínumenn leyfa olíuflutninga til Ungverjalands og Slóvaíku, ætlum við ekki að samþykkja neitt sem