Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Skúrum og slydduéljum spáð víða

Nokkurrar úrkomu gæti orðið vart á höfuðborgarsvæðinu í dag eftir mikla þurrkatíð á þessu ári. Spáð er skúrum eða slydduéljum víða um land. Hitastig verður yfir frostmarki í dag en á morgun kólnar aftur.Veðurspáin er svohljóðandi:Sunnan- og suðaustanátt, víða átta til þrettán metrar á sekúndu í dag. Skúrir eða slydduél, en að mestu þurrt norðaustantil á landinu. Hlýnandi, hiti eitt til sjö stig seinnipartinn.Snýst í norðan og norðvestan átta til fimmtán metra á sekúndu á morgun, en þrettán til átján á Austfjörðum síðdegis. Él, einkum norðanlands, en slydda eða rigning um tíma á Austur- og Suðausturlandi. Kólnar aftur, frost um mestallt land seint á morgun.
Skúrum og slydduéljum spáð víða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta