Ný ríkisstjórn tekur við völdum í Hollandi í dag undir forystu miðjumannsins Robs Jetten, sem verður yngsti forsætisráðherra í sögu landsins og sá fyrsti opinberlega samkynhneigði. Flokkur hans D66 sigraði í kosningum í október sem boðað var til eftir að Frelsisflokkurinn, harðlínuhægriflokkur Geerts Wilders, dró sig úr ríkisstjórninni.Rob Jetten tókst á 117 dögum að mynda samsteypustjórn með miðhægriflokknum CDA og frjálslynda flokknum VVD, sem vantar níu þingmenn til að hafa meirihluta þingsins á bak við sig.Flokkarnir birtu stefnuyfirlýsingu í janúar þar sem þeir hétu fullum stuðningi við Úkraínu og fylgispekt við fjárframlög til Atlantshafsbandalagsins.Fráfarandi ríkisstjórn Dicks Schoof er sú hægrisinnaðasta sem setið hefur að völdum og þótt sú nýja sé ekki jafnlangt til hægri, segir