Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Zelensky segir Pútín hafa hleypt þriðju heimsstyrjöldinni af stað með innrásinni fyrir fjórum árum

Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir í viðtali við Jeremy Bowen á BBC að Rússlandsforseti hafi hleypt þriðju heimsstyrjöldinni af stað með innrásinni fyrir rétt tæpum fjórum árum.Volodymyr Zelensky kvaðst ekki telja að Vladimír Pútín léti staðar numið við Úkraínu. Hernaðarleg og efnahagsleg mótspyrna væri eina leiðin til að stöðva hann í tilraunum til frekari landvinninga.„Rússar vilja troða sínum lífstíl upp á heiminn,“ sagði Zelensky og bætti við að það væri sigur alls heimsins fengi Pútín ekki að leggja Úkraínu undir sig. Hann áréttaði að ekki kæmi til greina að gefa eftir þann fimmtung Úkraínu sem Rússar hafa hernumið í austur- og suðurhlutanum.„Ég sé þetta ekki sem eftirgjöf lands heldur sem niðurlægingu. Við værum að yfirgefa hundruð þúsunda Úkraínumanna sem þar búa,“ sagði Zelens
Zelensky segir Pútín hafa hleypt þriðju heimsstyrjöldinni af stað með innrásinni fyrir fjórum árum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta