Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vonast eftir fundi um kjarnorkusamning í skugga hótana um árásir Bandaríkjamanna

Íranskir ráðamenn vonast til að miði í samkomulagsátt um nýjan kjarnorkusamning við Bandaríkin þegar viðræður hefjast að nýju á fimmtudag. Bandaríkjamenn hafa aukið verulega á herafla sinn í Mið-Austurlöndum til að þrýsta á Írani.Donald Trump forseti hefur ítrekað hótað þeim hörðum árásum náist ekki samkomulag. Utanríkisráðherrann Abbas Araghchi sagði verið að draga upp helstu atriði samnings í viðtali á CBS í gær, skömmu eftir að aðalsamningamaður Bandaríkjanna, Steve Witkoff, spurði opinberlega hví Íranir hefðu ekki enn gefist upp undan þrýstingnum.„Hvers vegna segjast þeir ekki einfaldlega ekki ætla að smíða kjarnavopn og sýna okkur þannig samning?“, spurði Witkoff. Araghchi ítrekaði jafnframt rétt Írana til að auðga úran og verja sig réðust Bandaríkjamenn til atlögu að þeim.Hann kvaðst
Vonast eftir fundi um kjarnorkusamning í skugga hótana um árásir Bandaríkjamanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta