Vladimír Pútín Rússlandsforseti boðar að kjarnorkuvopnabúr landsins verði þróað og uppfært enn frekar ásamt öllum deildum hersins.Hann sagði í gær að uppbygging kjarnorkuhers landsins væri „algjört forgangsverkefni“ eftir að Nýja-Startsamkomulagið við Bandaríkin um fækkun kjarnorkuvopna rann út. Þannig væri öryggi Rússlands tryggt með hernaðarlegri fælingu og jafnvægi herafla ríkja heims.Pútín sagði þetta í sjónvarpsávarpi í tilefni dags Verndara föðurlandsins sem einkennist af miklum hersýningum og föðurlandsást.Forsetinn hét því jafnframt að byggja á þeirri reynslu sem fengist hefði af næstu fjögurra ára stríði í Úkraínu til að styrkja landher og sjóher, í raun herinn allan. Hann yrði gerður enn bardagahæfari, hreyfanlegri og betur í stakk búinn að berjast við allar aðstæður, jafnvel þær