Vatnsból höfuðborgarbúa hefðu getað verið í hættu af völdum gróðureldanna við Elliðavatn í gær hefði vindátt verið önnur. Þannig brunar geti auðveldlega mengað vatnsbólin.„Í raun var vindáttin heppni,“ segir Brynja Ragnarsdóttir forstöðukona Vatnsmiðla á vef Veitna og bætir við að ekki megi reiða sig á lukkuna. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins náði um kvöldmatarleytið í gær að slökkva víðfeðman sinueld sem kviknaði við Elliðavatn síðdegis og teygði sig í átt að vatnsbólum Veitna.Brynja Ragnarsdóttir segir bruna af þessu tagi grafalvarlega, ekki þurfi mikið að gerast til að mengunarefni frá eldinum skolist niður í drykkjarvatn og áréttar að öll umgengni skapi hættu á svæðinu.„Þótt mannvirki sleppi þá geta mengunarefni af eldinum skolast niður í drykkjarvatnið okkar. Það þarf ekki mikið til,