Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Icelandair hefur aflýst ferðum til og frá austurströnd Bandaríkjanna

Icelandair hefur aflýst ferðum til og frá austurströnd Bandaríkjanna.RÚV / Ragnar VisageIcelandair hefur aflýst tveimur komum frá New York klukkan sex í fyrramálið og ferðum þangað og til Boston síðdegis vegna stórhríðar á austurströnd Bandaríkjanna. Þetta kemur fram á vef Isavia. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hefur í færslu á Facebook eftir bandarískum veðurfræðingum að á JFK-flugvelli við New York megi búast við yfir fimmtíu sentímetrum af snjó. Veðrið mun að sögn Veðurstofu Bandaríkjanna færast hratt í aukana allt frá Maryland suðaustur til Nýja Englands og getur valdið usla í samgöngum. Líklegt þykir að snjókoma og hvassviðri valdi rafmagnstruflunum eða straumrofi á svæði þar sem næstum 54 milljónir manna búa.
Icelandair hefur aflýst ferðum til og frá austurströnd Bandaríkjanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta