Höfuðpaur stærsta eiturlyfjahrings Mexikó, Nemesio Oseguera Cervantes, betur þekktur sem „El Mencho“, var skotinn í hernaðaraðgerð mexíkóska hersins í bænum Tapalpa í vesturhluta Mexíkó í dag. Cervantes lést í sjúkraflugi til Mexíkóborgar.Cervantes er einn þeirra glæpamanna sem mexíkóska ríkið hefur lagt hvað mesta áherslu á að handsama og var hann flokkaður sem einn efirlýstasti maður bæði Mexíkó og Bandaríkjanna.Cervantes var leiðtogi og höfuðpaur eiturlyfjahringsins Jalisco New Generation (CJNG). Eiturlyfjahringurinn hefur verið alræmdur fyrir ofbeldisfull athæfi sitt. UPPLÝSINGAR FRÁ BANDARÍKJUNUM GERÐU ÚTSLAGIÐ Í yfirlýsingu frá mexíkóska ríkinu kemur fram að viðbótarupplýsingar frá bandarískum yfirvöldum hefðu gert útslagið. Bandaríkin hafa flokkað hópinn sem hryðjuverkasamtök og